top of page

BSS
Jarðfræði
Merkúríus er bergreikistjarna eins og Jörðin. Til að finna út úr hverju hún er án þess að sækja þangað grjót og koma með til Jarðar, er hægt að skoða ljósið sem endurvarpast af yfirborðinu. Mismunandi efni endurvarpa ljósinu á mismunandi hátt. Efnin hafa með öðrum orðum mismunandi einkennisliti eða bylgjulengdir sem eru nokkurs konar fingraför. Þetta kallast litrófsgreining.
Með litrófsgreiningu höfum við fundið út að yfirborð á Merkúríusar eru mestmegnis efni sem finnast í storkubergi, bergi sem var bráðið skömmu eftir að reikistjarnan varð til. Merkúríus er mjög massamikil reikistjarna miðað við stærð. Innan í honum er kjarni úr járni sem er álíka stór og tunglið okkar. Miðað við stærð er Merkúríus járnríkasta fyrirbærið í sólkerfinu.
bottom of page