top of page

BSS
Hver fann Merkúríus?
Ekki er hægt að segja að neinn tiltekinn maður hafi fundið Merkúríus, frekar en tunglið eða sólina,því að þessir hnettir hafa allir verið þekktir og sýnilegir eins lengi og menn hafa munað . Þegar Merkúríus er á lofti í þokkalegu myrkri sést hann með berum augum víðast hvar á jörðinni, en að vísu ekki vel í misjöfnum veðrum hér á norðurslóð.Sunnar í álfum sést Merkúríus álíka vel og aðrar reikistjörnur sem menn hafa vitað af frá öndverðu, en þær eru samtals fimm: Merkúríus, Venus, Mars, Júpíter og Satúrnus.
bottom of page