
BSS
Hitastig Merkúríusar
Merkúríus hefur mestu hitasveiflur meðal reikistjarna sólkerfisins. Það er vegna þess að hún er næst sólinni, snýst löturhægt um sjálfan sig og hefur nánast engan lofthjúp. Á daginn verður funheitt allt að 420°C þegar heitast er, en sá hiti dugir til að bræða tin og blý . Það er heitara en í ofni og dygði til að bræða blý.
Á næturna verður hinsvegar mjög kalt eða um –170°C frost. Frostið getur orðið enn meira í gígum á pólum Merkúríusar, þar sem sólin skín aldrei. Heitasti staðurinn á Merkúríusi heitir Kaloris sem þýðir heitt. Kaloris er risavaxinn gígur einn sá stærsti í sólkerfinu.
Mikill hiti við yfirborð Merkúríusar og lítið aðdráttarafl hans veldur því að Merkúríus hefur ekkert andrúmsloft. Hafi Merkúríus einhvern tímann haft andrúmsloft hefur það soðið í burtu vegna nálægðar við sólu. Þó má finna örþunnt gaslag á reikistjörnunni sem losnar frá sjóðheitu yfirborðsberginu.