top of page

Furðulegur Sólargangur

 

Hægur möndulsnúningur og miðskekkja brautar Merkúríusar veldur einkennilegum áhrifum efgeimfari væri staddur á yfirborðinu. Á ákveðnum stöðum kemur sólin upp í austri, hreyfist hægtog rólega yfir himinninn þar til hún stöðvast, snýr við og fer aftur á bak um átta jarðdaga skeið unshún heldur áfram ferð sinni frá austri til vesturs. Ástæðan er sú að brautarhraði Merkúríusar er breytilegur eftir fjarlægð frá sól. Þar að auki kemur hægur möndulsnúningur Merkúríusar. Þá nærfærsla sólarinnar á himninum vegna brautarhreyfingar umhverfis sól (frá vestri til austurs) að yfirvinna færslu sólarinnar á himninum sem tilkomin er vegna möndulsnúnings plánetunnar (fráaustri til vesturs því þær snúast rangsælis).Annars staðar kemur sólin upp en er aðeins á lofti í um fjóra jarðdaga lágt á austurhimni, sest afturen kemur svo upp að nýju fjórum dögum síðar og fer þá sína leið frá austri til vesturs. Í vestri sest hún svo en rís aftur í stutta stund um 4 dögum síðar, en sest svo. Stæði geimfari á yfirborðinu og horfir á sólsetur við sólnánd, myndi sólin ekki setjast. Hún myndi dýfa sér rétt niður fyrir sjóndeildarhringinn í vestri og þá koma aftur upp, aðeins til að setjast í annað sinn, einum eða tveimur dögum síðar.

BSS

© 2014 by Búi, Sindri and Sveinbjörn created with Wix.com

  • w-facebook
  • Twitter Clean
  • w-flickr
bottom of page